Einkavæðingavinirnir í borgarstjórn

Í ljósi umræðu um mögulega sölu á eignarhlut ríkisins á Landsvirkjun finnst mér rétt að minna á að ekki er langt síðan að tveir flokkar í borgarstjórn,  Samfylkingin og Besti flokkurinn, viðruðu hugmyndir sínar um að selja Orkuveituna. Sjá t.d. frétt í Viðskiptablaði Morgunblaðsins  frá 27. janúar 2011.

Við skulum halda því til haga að Vinstri græn hafa alla tíð staðið á móti einkavæðingu Orkuveitunnar og þá einnig raforkukerfisins,  þar sem um er að ræða mikilvæga almannaþjónustu sem á ekki að vera undirseld markaðsöflunum.

 

vidskiptabladmoggans_27012011

Stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur telur hugsanlegt að hag neytenda verði betur borgið til langs tíma séu orkufyrirtæki í einkaeigu. Hann segir að þörf sé á gagngerri endurskoðun á rekstrarformi fyrirtækisins.