Eftir
Líf
Þörf áminning og smá grobb
Vinstri græn eru sterk í borgarstjórn. Á síðasta kjörtímabili hefur VG meðal annars:
- Fengið samþykkt að orkuverð OR verði gert opinbert
- Fengið samþykkta hjólreiðaáætlun fyrir Reykjavíkurborg
- Fengið samþykkt rannsókn á stjórnsýslu og stjórnkerfi borgarinnar
- Komið í veg fyrir að Orkuveitan lenti í klóm Hannesar og Bjarna
- Fengið samþykkt að afnema forréttindi borgarfulltrúa og valinna embættismanna varðandi sumarbústaði
- Fengið samþykkt að atvinnulaust fólk fái frítt í sund og á bókasöfn
- Spornað gegn því að Björgólfur Thor Björgólfsson eignaðist Hallargarðinn
- Fengið samþykkt að barnafólk á fjárhagsaðstoð fái desemberuppbót
- Stöðvað einkavæðingu á Droplaugarstöðum
- Fengið samþykkta tillögu um árlega borgarafundi með borgarbúum og borgarfulltrúum
- Fengið samþykkt að styrkja Barnverndarnefnd um 3 stöðugildi
- Fengið samþykkt að árið 2010 er tileinkað velferð barna
- Fengið samþykkt að stofnaður var aðgerðarhópur um velferð barna
- Ítrekað fengið samþykkt aukið fjármagn til aðgengismála
- Fengið samþykkt að fjölga atvinnutækifærum fyrir ungt fólk með auknu fjármagni
- Fengið samþykkt að stofna námskeið í notkun Strætó fyrir börn í 3.-4. bekk
- Fengið samþykkt að bæta stöðu utangarðsfólks
- Fengið samþykkt að auka táknmálstúlkun á viðburði borgarinnar
- Fengið samþykkta hlutlausa úttekt á kynbundnum launamun í borginni
- Fengið samþykkt að skólamáltíðir séu á sama verði í öllum skólum og að aðeins er greitt fyrir tvö börn
- Endurmetið skipulag á Hólmsheiði í þágu grænna svæða
Við í VG erum dugleg og ósérhlífin. Við mættum hins vegar vera betri í að monta okkur dáldið.